— Morgunblaðið/Þórður
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Fimleikar spila stórt hlutverk í lífi Jóns Sigurðar Gunnarssonar og Sigurðar Andrésar Sigurðarsonar. Jón er Íslandsmeistari í fjölþraut karla og Sigurður er Íslandsmeistari í stökki og á tvíslá.

Fimleikar spila stórt hlutverk í lífi Jóns Sigurðar Gunnarssonar og Sigurðar Andrésar Sigurðarsonar. Jón er Íslandsmeistari í fjölþraut karla og Sigurður er Íslandsmeistari í stökki og á tvíslá. Vinirnir hafa einnig nýtt fimleikahæfileikana í að sýna listir sínar með Sirkus Íslands og í haust ætla þeir að dreifa gleðinni enn frekar með því að bjóða upp á námskeið í fullorðinsfimleikum.

Erla María Markúsdóttir

erla@mbl.is

Sigurður Andrés og Jón Sigurður, eða Siggi og Nonni eins og þeir eru ávallt kallaðir, starfa báðir sem fimleikaþjálfarar og -dómarar, hafa báðir átt sæti í íslenska fimleikalandsliðinu og vinna báðir hjá fimleikadeild Ármanns. Siggi stundar auk þess nám við Fjölbrautaskólann í Ármúla og Nonni stundar nám í vélaverkfræði við Háskóla Íslands og djasspíanónám í FÍH. „Svo vinn ég líka á bar. Það er svolítið mikið að gera hjá mér núna en ég get ekki verið án fimleikanna,“ segir Nonni.

„Fimleikarnir hafa alltaf verið til staðar og munu alltaf vera til staðar, þó að allt hitt hverfi,“ segir Siggi, sem hefur æft fimleika frá 10 ára aldri. „Ég byrjaði frekar seint, miðað við aðra fimleikamenn.“ Árangurinn lætur hins vegar ekki á sér standa, en Sigurður er Íslandsmeistari í stökki og á tvíslá í áhaldafimleikum karla. Nonni hefur æft fimleika frá fimm ára aldri og er ríkjandi Íslandsmeistari í fjölþraut karla. „Það eru öll áhöldin samanlagt, það er gólf, bogahestur, hringir, stökk, tvíslá og svifrá,“ segir Nonni, sem er einnig Íslandsmeistari í hringjum og á gólfi í einstökum áhöldum.

Áhugi eftir Ólympíuleika

Fimleikar virðast kannski ekki vera íþrótt fyrir alla við fyrstu sýn en Nonni og Siggi segja hiklaust að allir geti stundað fimleika. Þess vegna ætla þeir að bjóða upp á fullorðinsfimleika í vetur, það er námskeið í fimleikum fyrir 18 ára og eldri. Þeir segja að áhuginn sé til staðar, sérstaklega svona stuttu eftir Ólympíuleikana. „Það er greinilegt að fólk hefur verið að horfa og við viljum nýta tækifærið og halda áhuganum við,“ segir Nonni. „Ég veit að margt fólk langaði að fara í fimleika þegar það var yngra en fór aldrei og langar að prófa núna,“ segir Siggi. „Eða kannski fólk sem hætti snemma og langar að prófa aftur,“ segir Nonni. Námskeiðið er samt sem áður fyrir alla, hvort sem þeir hafa reynslu úr fimleikaheiminum eða ekki. „Við kennum öllum. Stefnan er ekki að þjálfa fólk fyrir keppni, heldur er það að mæta fyrir sig. Þetta er frábær líkamsrækt,“ segir Siggi.

Fullorðinsfimleikar hafa verið kenndir nokkrum sinnum í gegnum tíðina í Ármanni. Uppruna námskeiðsins, að minnsta kosti hjá Ármanni, má rekja til áhugasamra fimleikamæðra fyrir nokkrum árum. „Þetta byrjaði þannig að mömmurnar sem fylgdust með börnum sínum á æfingum langaði að prófa sjálfar og höfðu samband við einn þjálfarann, sem tók vel í þessa hugmynd.“

Hraði, hlaup og hin ýmsu stökk einkenna fimleika og eflaust hræðast margir að steypa sér í fimleikagryfjuna. Nonni og Siggi segja að óþarfi sé að hræðast æfingarnar en ákveðinn ótti sé þó eðlilegur fylgifiskur fimleika. „Við þekkjum það alveg sjálfir frá því að við vorum litlir að það er ótti í fimleikum, en við erum með heimsklassa aðstöðu,“ segir Nonni. „Við látum fólk ekki gera neitt sem það er ekki tilbúið í. Það er aðalreglan í fimleikum að þú framkvæmir ekki æfingar nema að þú sért með fullkomna stjórn á þeim,“ segir Siggi.

Kúnst að kunna að detta

Námskeiðið er mjög fjölbreytt. „Við erum að þjálfa vöðva sem fólk hefur yfirleitt lítið notað,“ segir Nonni. Þeir segja að námskeiðið sé fyrst og fremst til að koma til móts við áhuga fólks og forvitni. „Við erum ekki að stefna á Ólympíuleikana en ég veit um marga sem eru komnir með leið á hefðbundinni líkamsrækt og vilja auka þrek og liðleika á sama tíma og þeir gera eitthvað flott, eins og til dæmis eitthvað sem þeir sáu í sjónvarpinu,“ segir Siggi. „Ég hef einnig heyrt að fólk vilji koma í fimleikana til að læra að detta,“ bætir hann við. „Að detta snýst um viðbrögð og rýmisgreind. Maður dettur oft á hverjum degi í fimleikum,“ segir Nonni. Er námskeiðið þá tilvalið fyrir klaufa? „Já, það má kannski segja það,“ segir Nonni og hlær. „En ég hef einnig heyrt frá öðru íþróttafólki að það sé gagnlegt að læra að detta. Hér er allavega nóg af dýnum þannig að enginn ætti að meiða sig,“ segir Siggi.

Félagarnir eru báðir vanir að þjálfa börn, en ætli það sé einhver munur á að þjálfa þau og fullorðna? „Já, fullorðnir eru viðkvæmari en börnin, líkamlega, en þeir skilja fyrirmæli betur,“ segir Nonni. „Fullorðnir hlaupa líka ekki eins mikið út um allt og krakkarnir,“ segir Siggi og hlær.

Námskeiðið er kennt þrisvar í viku, einn og hálfan tíma í senn. Nánari upplýsingar má nálgast hjá Íþróttafélagi Ármanns eða hafa beint samband við Nonna eða Sigga á Facebook. Fyrsta æfing verður 5. september og er hún opin öllum. „Það er aldrei of seint að byrja, fimleikar eru fyrir alla,“ segir Siggi.

Strákarnir leyna á sér

Siggi og Nonni leggja sjálfir mikla áherslu á áhaldafimleika. „Það er held ég eina íþróttin þar sem karlar og konur eru ekki að gera sömu hlutina. Karlarnir eru með sex áhöld en konurnar með fjögur. Bara tvö af þessum áhöldum eru sameiginleg, gólf og stökk. „Þetta er sitt hvor íþróttin í rauninni. Hvernig við ætlum að tækla það í vetur mun bara koma í ljós. En ef stelpurnar vilja prófa strákaáhöldin, til dæmis bogahestinn, og öfugt munum við auðvitað kenna þeim það,“ segir Siggi.

Félagarnir munu einnig vinna að sínum eigin markmiðum í vetur, en Nonni er með háleitt en raunhæft fjögurra ára markmið. „Ég komst ekki á Ólympíuleikana í Ríó þannig að ég ætla að reyna mitt besta til að komast til Tókýó 2020.“ Þeir eru sammála um að karlafimleikar séu á mikilli uppleið hér á landi, þótt meira sé fjallað um kvennafimleikana þessa stundina. „Eðlilega kannski, þar sem núna komst íslensk fimleikakona í fyrsta skipti á Ólympíuleikana og kvennalandsliðið hefur verið að gera góða hluti, en við strákarnir leynum á okkur,“ segir Siggi að lokum áður en þeir félagarnir halda saman á tveggja tíma áhaldafimleikaæfingu. Að henni lokinni er svo komið að jafn langri loftfimleikaæfingu.