Hildur Sverrisdóttir
Hildur Sverrisdóttir
Eftir Hildi Sverrisdóttur: "Í starfi mínu sem borgarfulltrúi hef ég oftar en ekki tekið fyrir mál sem snerta grunngildi eins og tjáningarfrelsi, eignar- og sjálfsákvörðunarrétt."

Ég tilkynnti fyrir stuttu að ég hygðist bjóða mig fram í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Þrátt fyrir að ég hafi verið virk í starfi flokksins allt frá árinu 2008 urðu einhverjir til að spyrja mig af hverju ég vildi sækjast eftir þingsæti fyrir þann flokk. Raunar hef ég verið spurð um slíkt allt frá því að ég hóf að taka þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins, strax eftir efnahagshrunið. Eflaust stafar það meðal annars af því ég hef allt frá því að ég var ung sinnt málefnum á borð við jafningjafræðslu, flóttamannaaðstoð og forvarnarstarfi gegn kynferðisofbeldi, sem oft er frekar tengt við félagshyggjuflokka en Sjálfstæðisflokkinn.

Grunngildið einstaklingsfrelsi

Ég hef alltaf svarað því til að allt gengur þetta starf út á að vernda frelsi einstaklingsins frá ofríki og ofbeldi, sjálfstæði hans og reisn. Það er einmitt í Sjálfstæðisflokknum sem ég fann samhljóm við þá lífssýn mína. Enginn flokkur stendur með sama hætti vörð um það grunngildi sem einstaklingsfrelsið er.

Sjálfstæðismenn tala oft um frelsi til orðs og æðis. Þessi orð eru ekki úrelt. Í samfélagi okkar í dag erum við sífellt að kljást um hvað felst í athafna- og tjáningarfrelsi. Mér finnst mikilvægt að fólki sé ekki sagt fyrir verkum um hvað það má gera, segja og hugsa, svo lengi sem það meiðir engan annan. Í starfi mínu sem borgarfulltrúi hef ég oftar en ekki tekið fyrir mál sem snerta grunngildin okkar, eins og tjáningarfrelsi, eignar- og sjálfsákvörðunarrétt. Þessi gildi missa marks ef við stöndum ekki vörð um þau. Sú varðstaða verður að eiga sér stað alla daga og við verðum að máta hvert einasta mál sem kemur á okkar borð við þessi gildi og passa upp á þau.

Valfrelsi og virðing í velferðarþjónustu

Helstu viðfangsefni stjórnmálanna taka breytingum eftir tíðaranda hverju sinni. Ég vil beita mér fyrir því að við varðveitum þann árangur sem hefur náðst í fjármálum ríkisins, um leið og ég vil forgangsraða þannig að þau sem þurfa aðstoð okkar hinna séu fremst í forgangsröðinni þegar ríkissjóður fær aukið svigrúm. Ég vil bjóða upp á meira valfrelsi og virðingu fyrir mismunandi þörfum þeirra sem þurfa á velferðarþjónustu að halda. Ég vil að eldra fólk njóti ávaxta erfiðis síns og lífeyrisgreiðslur skerði ekki ellilífeyri. Ég vil að menntakerfið okkar miðist við að búa yngri kynslóðir undir breytta framtíð með nýjum áskorunum, þar sem verðmætasköpun og framleiðni nægir til að standa undir velferðarþjónustu við þjóð sem eldist.

Ég vil ekki kollvarpa stjórnarskránni okkar heldur taka yfirvegaðar ákvarðanir um að breyta henni í sem víðtækastri sátt. Sem formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Sjálfstæðisflokksins hef ég beitt mér fyrir því að gerðar verði afmarkaðar og tímabærar breytingar á stjórnarskránni. Nýja stjórnarskrá þurfum við hins vegar ekki.

Ég vil nýta reynslu mína úr borgarmálum, meðal annars til að berjast fyrir hagsmunum Reykvíkinga á þingi. Ég tel mig hafa ýmislegt fram að færa í umræðunni um hvernig við getum sýnt fyrirhyggju við uppbyggingu ferðaþjónustu, hlúð að því góða í borgarsamfélaginu okkar og verndað náttúru landsins okkar um leið og við njótum ávaxtanna af gífurlegri fjölgun ferðamanna. Ég vil nýta reynslu mína úr borgar- og skipulagsmálum til að stuðla að því að hægt sé að tryggja gott og hagkvæmt húsnæði fyrir ungt fólk og alla aðra.

Ég býð fram krafta mína í þágu þess að sjálfstæðisfólk í Reykjavík geti kosið öflugan og breiðan lista fólks sem getur staðið vörð um þann efnahagslega árangur sem hefur náðst á núverandi kjörtímabili og staðið til framtíðar vörð um þau grunngildi sem við vitum að eru nauðsynleg til að skapa hér gott og réttlátt samfélag þar sem allir eiga tækifæri.

Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og býður sig fram í 4. sæti í prófkjöri flokksins í Reykjavík.

Höf.: Hildi Sverrisdóttur