Magnús Matthíasson
Magnús Matthíasson
Magnús Mattíasson, formaður handknattleiksdeildar Selfoss, er vongóður um að karlalið félagsins fái að leika heimaleiki sína í Olís-deild karla í íþróttahúsi Vallaskóla í vetur.

Magnús Mattíasson, formaður handknattleiksdeildar Selfoss, er vongóður um að karlalið félagsins fái að leika heimaleiki sína í Olís-deild karla í íþróttahúsi Vallaskóla í vetur.

Áður hafði verið greint frá því í Morgunblaðinu að HSÍ hefði gert úttekt á aðstæðum í íþróttahúsi Vallaskóla þar sem Selfoss hefur spilað heimaleiki sína. Niðurstaðan var sú að aðstaðan uppfyllti ekki kröfur sem gerðar væru til leikja og sá HSÍ engar leiðir til úrbóta. Magnús birtir yfirlýsingu vegna málsins á Facebook-síðu handknattleiksdeildar Selfoss. Þar kemur fram að fulltrúar stjórnar handknattleiksdeildar hafi fundað með forráðamönnum sveitarfélagsins, auk fulltrúa HSÍ og fulltrúa aðalstjórnar UMFS um málið.

„Ástæða er til bjartsýni að þessum fundi loknum og teljum við að viðunandi lausn muni finnast á málinu og að allir geti gengið sáttir frá borði og að spilað verði í íþróttahúsi Vallaskóla í vetur,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni sem hægt er að nálgast í frétt á mbl.is/handbolti frá því í gær. sport@mbl.is