Ólöf fæddist 4. desember 1935. Hún lést 9. júlí 2016.

Útför Ólafar fór fram 16. júlí 2016.

Elsku amma mín, mikið er ég ánægður að þú hafir náð að hitta nöfnu þína, Védísi Ólöfu. Ég vona að hún fái öll þín persónueinkenni. Hver manneskja ætti að temja sér þrautseigju þína og lífsgleði. Ekki má gleyma matnum þínum, sem er bara svo miklu betri en hjá öðrum! Tengdapabbi sagði að bollur í brúnni sósu a la Lóló væru þær bestu sem hann hefði fengið og er hann matargikkur.

Elsku amma mín, ég veit að þú munt lifa í börnum þínum, barnabörnum og barnabarnabörnum. Ég veit að hvert sem þú ert farin, þá ef einhver þarfnast hjálpar munt þú veita aðstoð skilyrðislaust. Því þannig ertu bara.

En amma, ég mun sakna þín og stundanna með þér.

Hvíl í friði. Þinn sonarsonur,

Ingi Valur og fjölskylda.