Sigríður Á. Andersen, alþingismaður, hefur ákveðið að sækjast eftir 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Í tilkynningu segir Sigríður m.a.

Sigríður Á. Andersen, alþingismaður, hefur ákveðið að sækjast eftir 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.

Í tilkynningu segir Sigríður m.a. að hún hafi náð góðum árangri í þeim málum sem hún hafi beitt sér fyrir á Alþingi, í efnahags- og skattamálum og ekki síður í umhverfismálum. Hún vilji gjarnan fá áfram tækifæri til að eiga frumkvæði að mikilvægum málum sem þessum.