List Verk eftir Gunnar Kr.
List Verk eftir Gunnar Kr.
Myndlistarmaðurinn Gunnar Kr. opnar myndlistarsýningu sína Formsins vegna á Akureyravöku í dag, laugardag, klukkan 15:00 og er sýningin í Listasafninu á Akureyri.

Myndlistarmaðurinn Gunnar Kr. opnar myndlistarsýningu sína Formsins vegna á Akureyravöku í dag, laugardag, klukkan 15:00 og er sýningin í Listasafninu á Akureyri.

Í tilkynningu um sýningu Gunnars segir að myndlist hans einkennist af slagkrafti og þunga sem birtist með fjölbreyttum hætti.

„Hann hafi t.d. teiknað biksvartar blýsólir og logskorið stálblóm. Undanfarin misseri hefur Gunnar notað fislétt og viðkvæmt hráefni til myndgerðar – pappír – sem hann mótar, sker, litar og raðar saman uns tilætluðum áhrifum er náð. Í spennunni milli formrænnar tjáningar listamannsins annars vegar og hráefnisins sem hann notar hins vegar er feiknaleg orka. Verk Gunnars Kr. líkjast um margt náttúrunni sjálfri; þau eru sterk, form endurtaka sig og fegurðin ríkir – þótt hún sé á stundum ógnvekjandi. Kröftug en þó viðkvæm,“ segir enn fremur í tilkynningunni.

Fagnar 30 árum í myndlistinni

Myndlistarferill Gunnars Kr. spannar þrjátíu ár og hefur hann komið víða við. Á fjölmörgum sýningum hefur hann sýnt málverk, skúlptúra, teikningar og vatnslitamyndir. Gunnar býr og starfar að list sinni á Akureyri. Sýningarstjóri er Joris Rademaker.

Í tilefni sýningarinnar kemur út sýningarskrá með textum eftir Hlyn Hallsson og Joris Rademaker og ljóðum eftir Aðalstein Svan Sigfússon.

Listasafnið verður opið til kl. 22 á opnunardegi sýningarinnar en sýningin er opin daglega kl. 10-17 út ágúst en eftir það kl. 12-17 þriðjudaga til sunnudaga og er aðgangur ókeypis. Þeir sem vilja kynnast list Gunnars Kr. enn betur geta sótt leiðsögn um sýningar Listasafnsins á fimmtudögum kl. 12.15-12.45.