Buslað Þegar sólin lætur sjá sig og hitastigið hækkar þá skella börnin sér léttklædd í tjörnina og láta vatnið leika um sig. Á slíkum dögum er gaman að vera til.
Buslað Þegar sólin lætur sjá sig og hitastigið hækkar þá skella börnin sér léttklædd í tjörnina og láta vatnið leika um sig. Á slíkum dögum er gaman að vera til. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Þegar ljósmyndari Morgunblaðsins, Árni Sæberg, var á ferðinni á Seyðisfirði á dögunum var veðurblíða mikil. Loksins kom sumarið til okkar, sögðu bæjarbúar.

Þegar ljósmyndari Morgunblaðsins, Árni Sæberg, var á ferðinni á Seyðisfirði á dögunum var veðurblíða mikil. Loksins kom sumarið til okkar, sögðu bæjarbúar. Seyðisfjörður fyllist af ferðamönnum þegar ferjan Norræna kemur í höfn og margir dvelja orðið lengur í bænum en áður, sér í lagi síðustu 2-3 dagana fyrir brottför skipsins.

„Hver einasta ferð er búin að vera full hjá okkur í sumar,“ segir Ósk Ómarsdóttir, deildarstjóri innritunar í Norrænu. Síðan í júní hafa um 1.000 farþegar verið að koma og fara í hverri viku. Ferjan tekur síðan um 400 ökutæki og töluverða frakt, sem Ósk segir að hafi verið að aukast. Vetraráætlun hefur tekið gildi en eftir sem áður kemur Norræna einu sinni í viku til Seyðisfjarðar. Við móttöku og brottför skipsins er mikill atgangur á hafnarbakkanum.

„Hér er mannlífið mest á miðvikudagskvöldum, bærinn fullur af fólki og engin gisting laus. Yfirleitt fara flestir ferðamenn héðan eftir að skipið kemur en þeir eru í meira mæli farnir að koma nokkrum dögum fyrir brottför. Þá fyllist tjaldstæðið og mikið líf færist í bæinn,“ segir Ósk.