Maður í Toronto er í gæsluvarðhaldi eftir lásbogaárás sem varð þremur að bana. Lögreglumenn fóru á vettvang eftir að tilkynning barst um stunguárás. Tvær manneskjur voru þegar látnar og lá sú þriðja særð. Lést hann síðar af sárum sínum.
Maður í Toronto er í gæsluvarðhaldi eftir lásbogaárás sem varð þremur að bana.
Lögreglumenn fóru á vettvang eftir að tilkynning barst um stunguárás. Tvær manneskjur voru þegar látnar og lá sú þriðja særð. Lést hann síðar af sárum sínum. Fórnarlömbin voru tveir karlmenn og ein kona.
Kom í ljós að fórnarlömbin hlutu ekki sár sín af stungum, heldur lásbogaörvum og lá lásbogi skammt frá. Að sögn lögreglufulltrúa er ásetningurinn enn óljós.