Aron Jóhannsson og samherjar hjá Werder Bremen urðu fyrir barðinu á meisturunum í Bayern München í þýsku Bundesligunni í gærkvöldi. Lið Bayern er greinilega geysisterkt eins og undanfarin ár og burstaði Bremen 6:0 í München.
Aron Jóhannsson og samherjar hjá Werder Bremen urðu fyrir barðinu á meisturunum í Bayern München í þýsku Bundesligunni í gærkvöldi. Lið Bayern er greinilega geysisterkt eins og undanfarin ár og burstaði Bremen 6:0 í München. Aron hóf leikinn í fremstu víglínu en fékk væntanlega ekki úr miklu að moða. Var honum skipt af velli á 64. mínútu.
Robert Lewandowski skoraði þrennu Xabi Alonso, Franck Ribery og fyrirliðinn Philipp Lahm skoruðu hin mörkin þrjú. kris@mbl.is