4 laukar og 2 hvítlauksrif, skorið smátt og snöggsteikt í olíu í pottinum. Ekki nota ólífuolíu. Snöggsteikið laukinn í 5 mín., bætið svo vatni í pottinn, u.þ.b. 2,5 lítra. Lambakrafti bætt við eftir smekk sem og þurrkuðum súpujurtum.
4 laukar og 2 hvítlauksrif, skorið smátt og snöggsteikt í olíu í pottinum. Ekki nota ólífuolíu.
Snöggsteikið laukinn í 5 mín., bætið svo vatni í pottinn, u.þ.b. 2,5 lítra.
Lambakrafti bætt við eftir smekk sem og þurrkuðum súpujurtum. Einnig ögn af svörtum pipar.
Eitt og hálft kíló lambakjöt skorið í bita og bætt út í.
Gulrætur, hvítkál og rófur skornar smátt og settar í pottinn 20 mínútum áður en súpan er borin fram.