Sjóðið 300 g af bankabyggi og hellið vatninu af. Á pönnu steikið sveppi, lauk, hvítlauk, chilipipar, og annað grænmeti. Bætið við 2-4 msk. tómatpúrru og vatni svo úr verði góð sósa. Jafnframt er gott að setja smátt skorna ferska tómata út í.

Sjóðið 300 g af bankabyggi og hellið vatninu af.

Á pönnu steikið sveppi, lauk, hvítlauk, chilipipar, og annað grænmeti.

Bætið við 2-4 msk. tómatpúrru og vatni svo úr verði góð sósa.

Jafnframt er gott að setja smátt skorna ferska tómata út í.

Kryddið með salti, pipar, grænmetiskrafti og öðru hressandi kryddi.

Blandið sósunni saman við soðið bankabyggið.

Sjóðið spaghettí og berið fram með byggsósunni.