Stjórnmál Anna Sigurlaug segir mann sinn hafa verið beittan blekkingum.
Stjórnmál Anna Sigurlaug segir mann sinn hafa verið beittan blekkingum. — Morgunblaðið/RAX
Stefán E. Stefánsson ses@mbl.

Stefán E. Stefánsson

ses@mbl.is

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þáverandi forsætisráðherra, og eiginkona hans, Anna Sigurlaug Pálsdóttir, afhentu fjölmiðlamönnum ítarlegar upplýsingar um eignarhaldsfélagið Wintris í aðdraganda þess að Ríkissjónvarpið sendi út Kastljósþátt að kvöldi sunnudagsins 3. apríl síðastliðins þar sem fjallað var um hin svokölluðu Panamaskjöl. Í þættinum var hvergi vikið að þeim útskýringum sem tíundaðar voru í svörunum.

Í ítarlegu viðtali við Önnu Sigurlaugu í Morgunblaðinu í dag ræðir hún um upplifun sína af þeim atburðum sem leiddu til þess að Sigmundur Davíð vék úr embætti forsætisráðherra. Hún segir að umfjöllunin um fjárhagsmálefni þeirra hjóna hafi öll miðað að því eina marki að koma höggi á eiginmann hennar og Framsóknarflokkinn.