Heilar níu plötur þekktra listamanna komu út vestanhafs í gær. Vince Staples, Banks & Steelz, Prophets of Rage, De La Soul, Young Thug, Cass McCombs, Carly Rae Jepsen, Junior Boys og Porches ljáðu heiminum þar með nýja tóna.
Plata De La Soul, Anonymous Nobody... , er fyrsta plata hljómsveitarinnar síðan árið 2004 og hefur hún nú þegar fengið mjög góða dóma á alnetinu. Flestar eru plöturnar svokallaðar smáskífur og er verk Yung Thug, No, My Name is JEFFERY , þar á meðal. Þar rappar hann um átrúnaðargoð sín en samkvæmt tilkynningu eru það meðal annars Rihanna, Harambe og Gucci Mane sem hljóta þann heiður. Þá biðu margir einnig spenntir eftir plötunni Prima Donna frá Vince Staples en verkið er það fyrsta sem hann gefur út síðan Summertime '06 kom út í júní.