Lovísa Thompson
Lovísa Thompson
Meistarakeppni HSÍ í kvennaflokki fer fram í kvöld. Þá mætast Íslandsmeistarar Gróttu og bikarmeistarar Stjörnunnar í árlegum leik um nafnbótina „meistarar meistaranna“.

Meistarakeppni HSÍ í kvennaflokki fer fram í kvöld. Þá mætast Íslandsmeistarar Gróttu og bikarmeistarar Stjörnunnar í árlegum leik um nafnbótina „meistarar meistaranna“. Leikurinn fer fram á heimavelli Gróttu, Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi og hefst leikurinn klukkan 19.30. Grótta tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn einmitt með því að leggja Stjörnuna að velli í úrslitaeinvígi liðanna sl. vor og eiga Garðbæingar því harma að hefna.

Leikurinn markar formlega upphaf keppnistímabilsins í kvennaflokki en Olís-deildin hefst svo 8. september. Nýtt keppnisfyrirkomulag verður í vetur í kvennaflokki þar sem átta lið keppa í Olís-deildinni og önnur átta lið leika í fyrstu deild.

bgretarsson@mbl.is