Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Aðeins 5,7% munu innheimtast af álögðum sektum og sakarkostnaði árið 2014, að því er fram kemur í endurskoðun ríkisreiknings fyrir árið 2014.
Í lögum um fullnustu refsinga sem samþykkt voru í vor voru innheimtuheimildir rýmkaðar en einnig kveðið á um að starfshópur á vegum innanríkisráðuneytis skilaði af sér tillögum og lagafrumvarpi um útfærslu innheimtuheimilda. Starfshópurinn, sem á að skila af sér 1. október næstkomandi, hefur ekki verið stofnaður.
„Mér finnst alveg ótækt að ríkissjóður verði af þessum tekjum sem búið er að dæma fólk til að greiða. Sérstaklega í ljósi þess að það er svo mikil biðröð í fangelsi landsins til að fullnusta refsingar að núverandi ákvæði eru að verða óvirk,“ segir Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar.
Í nefndaráliti meirihluta fjárlaganefndar um skýrslu Ríkisendurskoðunar segir að innheimtuárangurinn sé óviðunandi.
Innheimta
» 5,7% fengust greidd af álögðum sektum og sakarkostnaði árið 2014.
» Starfshópur innanríkisráðuneytis um endurbætur hefur ekki hafið störf.