Jón Sverrisson
Jón Sverrisson
Njarðvíkingar hafa náð sér í hávaxinn framherja fyrir átökin í Dominos-deild karla næsta vetur. Njarðvík samdi í gær við Jón Sverrisson eftir því sem fram kemur á netmiðlinum Karfan.is.

Njarðvíkingar hafa náð sér í hávaxinn framherja fyrir átökin í Dominos-deild karla næsta vetur. Njarðvík samdi í gær við Jón Sverrisson eftir því sem fram kemur á netmiðlinum Karfan.is. Jón var í stóru hlutverki hjá Fjölni þegar liðið lék vel í efstu deild fyrir nokkrum árum ásamt leikmönnum eins og Ægi Þór Steinarssyni og Tómasi Tómassyni. Jón fór í Stjörnuna árið 2013 en meiddist illa og náði lítið að beita sér með Garðbæingum. kris@mbl.is