100% svíning. S-Enginn
Norður | |
♠KG32 | |
♥Á1072 | |
♦ÁG85 | |
♣9 |
Vestur | Austur |
♠97654 | ♠Á10 |
♥94 | ♥D653 |
♦9 | ♦106432 |
♣G10872 | ♣63 |
Suður | |
♠D8 | |
♥KG8 | |
♦KD7 | |
♣ÁKD54 |
Suður spilar 6G.
Slemmurnar voru Grantverjum hagfelldar í síðustu lotu úrslitaleiksins við Bjarna lögmann. Hér opnaði Hrólfur Hjaltason á 2G (20-22) og Ásgeir Ásbjörnsson stýrði sögnum í 6G. Útspilið var ♣G.
Sagt er að svíning sé 50% séns, en það er sjaldan svo í 6G. Þá er oft nægur tími til að þreifa fyrir sér til hliðar áður en úrslitaákvörðun er tekin og við það aukast vinningslíkur verulega. Jafnvel upp í 100%.
Hrólfur sótti strax ♠Á og tíndi svo í sig slagina í kringum hjartað. Skiptingin afhjúpaðist fljótlega og það sem meira er – vestur varð að henda einu hjarta til að geta valdað báða svörtu litina. Þá gat Hrólfur tekið á ♥Á og svínað gosanum af 100% öryggi.
Hinum megin vakti Björn Eysteinsson á sterku laufi og fékk svarið 2G frá Guðmundi Hermannssyni: einspil í laufi og 4-4-4 til hliðar. Það var ekki uppörvandi og hann lét 3G duga.