Útgáfufyrirtækið Deutsche Grammophon upplýsti í gær að það hygðist í nóvember gefa út plötu með tónlist Jóhanns Jóhannssonar úr kvikmyndinni Arrival í leikstjórn Denis Villeneuve.
Útgáfufyrirtækið Deutsche Grammophon upplýsti í gær að það hygðist í nóvember gefa út plötu með tónlist Jóhanns Jóhannssonar úr kvikmyndinni
Arrival
í leikstjórn Denis Villeneuve.
Arrival
er þriðja samstarfsmynd þeirra félaga og önnur útgáfa Jóhanns hjá Deutsche Grammophon. Jóhann samdi tónlistina við spennumyndina
Sicario
í leikstjórn Villeneuve og mun sem kunnugt einnig semja tónlistina fyrir framhaldsmynd
Blade Runner
sem einnig er leikstýrt af Villeneuve, en leikstjórinn hefur sagt að tónlist Jóhanns hafi verið mikill áhrifavaldur þegar kvikmyndin var í tökum.