Tyrkinn Arda Turan lék allan leikinn fyrir Barcelona í gær þegar liðið tapaði óvænt fyrir Celta Vigo í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu, 4:3.

Tyrkinn Arda Turan lék allan leikinn fyrir Barcelona í gær þegar liðið tapaði óvænt fyrir Celta Vigo í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu, 4:3. Turan verður áfram við æfingar hjá Barcelona næstu daga því hann var ekki valinn í landsliðshóp Tyrklands fyrir leikina við Úkraínu og Ísland í undankeppni HM.

Fatih Terim, þjálfari Tyrkja, vill stóla á yngri leikmenn þjóðarinnar og valdi ekki heldur Burak Yilmaz, Selcuk Inan, Gökhan Gönül eða Caner Erkin. sport@mbl.is