Á tónleikum Björk Guðmundsdóttir.
Á tónleikum Björk Guðmundsdóttir. — Ljósmynd/AFP
Greint var frá því fyrr í vikunni að Björk Guðmundsdóttir muni koma fram á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves sem verður haldin dagana 2. til 6. nóvember næstkomandi. Tónleikarnir fara fram í Eldborgarsal Hörpu laugardaginn 5. nóvember.

Uppselt varð á tónleikana á nokkrum mínútum og hefur aukatónleikum verið bætt við þann 8. nóvember og munu þeir fara fram klukkan 12 á hádegi. Miðasala hefst klukkan 8 á morgun, þriðjudag. Líkt og með fyrri tónleikana hafa þeir sem hafa keypt miða á Airwaves-hátíðina forkaupsrétt á miðum á tónleikana. Ef einhverjir miðar verða eftir þegar forsölunni lýkur fara þeir í almenna sölu.