Lúlla Dúkkan er eitt fjögurra verka sem tilnefnd eru til Íslensku hönnunarverðlaunanna. Afhending fer fram 6. október.
Lúlla Dúkkan er eitt fjögurra verka sem tilnefnd eru til Íslensku hönnunarverðlaunanna. Afhending fer fram 6. október.
Hátt í 100 tilnefningar til Hönnunarverðlauna Íslands 2016 bárust dómnefnd, sem hefur nú valið fjögur verk sem þykja framúrskarandi. Tilnefningarnar fjórar komu í hlut As We Grow, Lulla doll, Or Type og Orku framtíðarinnar.

Hátt í 100 tilnefningar til Hönnunarverðlauna Íslands 2016 bárust dómnefnd, sem hefur nú valið fjögur verk sem þykja framúrskarandi. Tilnefningarnar fjórar komu í hlut As We Grow, Lulla doll, Or Type og Orku framtíðarinnar.

As We Grow er íslenskt hönnunarfyrirtæki í eigu Guðrúnar Rögnu Sigurjónsdóttir prjónahönnuðar, Maríu Th. Ólafsdóttur fatahönnuðar og Grétu Hlöðversdóttur framkvæmdastjóra. Með vörulínunni tvinna þær saman fagurfræði, hefðir og nútíma í endingargóðan fatnað sem bæði vex með hverju barni og endist á milli kynslóða.

Lulla doll er afrakstur Eyrúnar Eggertsdóttur frumkvöðuls, Birnu Bryndísar Þorkelsdóttur hönnuðar og Sólveigar Gunnarsdóttur markaðsstjóra. Dúkkunni er ætlað að róa og veita ungbörnum öryggistilfinningu og betri svefn, en hún líkir eftir hjartslætti og andardrætti foreldris.

Leturstúdíóið Or Type stofnuðu grafísku hönnuðirnir Guðmundur Úlfarsson og Mads Freund Brunse árið 2013. Letur þeirra hefur nú þegar farið víða og verið notað á fjölbreyttar vörur s.s. tímarit, umbúðir og búninga íslenska karla- og kvennalandsliðsins í knattspyrnu á EM.

Sýningin Orka til framtíðar í Ljósafossstöð skýrir á gagnvirkan hátt orku og hvernig má bæði beisla hana og nýta. Hönnuðir sýningarinnar eru Gagarín og Tvíhorf arkitektar en fjöldi annarra fyrirtækja og sérfræðinga kom að sýningunni.

Verðlaunin verða afhent í þriðja sinn fimmtudaginn 6. október í Safnahúsinu við Hverfisgötu 15. Einnig verður veitt viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu í hönnun. Viðurkenningin er nú veitt í annað sinn og í tilkynningu frá dómnefnd segir að vinningshafinn í ár hafi fengið til starfa einhverja færustu hönnuði landsins, hvern á sínu sviði. Með þessu hefur fyrirtækið skilgreint hönnun sem mikilvægan þátt í öllu þróunarferli og skapað ímynd og upplifun tengda fyrirtækinu með framúrskarandi hætti.