Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra og Lilja Dögg Alfreðsdóttir standa uppi sem sigurvegarar þegar tæpar fjórar vikur eru til þingkosninga. Þetta gæti gefið Framsóknarflokknum jákvæða athygli og byr undir báða vængi fyrir komandi þingkosningar, en til þess að slíkt geti orðið þurfa stríðandi fylkingar innan flokksins að slíðra sverðin. Þetta er mat Baldurs Þórhallssonar, prófessors í stjórnmálafræði, en framsóknarmenn kusu nýja forystu á flokksþingi sem haldið var í Háskólabíói um helgina. Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra hlaut 370 atkvæði, eða 52,7 prósent, á móti sitjandi formanni flokksins, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, sem fékk 329 atkvæði. Sigmundur hefur ekki tjáð sig um hvort hann haldi áfram störfum fyrir Framsóknarflokkinn.
Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, dró framboð sitt til ritara til baka eftir að úrslit formannskjörsins urðu ljós en hann hefur verið harður stuðningsmaður Sigmundar Davíðs.
Sigurður Ingi segir úrslitin bera þess merki að flokksmenn beri mikið traust til beggja frambjóðenda. Úrslitin séu þó afgerandi og er hann þakklátur fyrir stuðninginn.
Formannskjör
» Lilja D. Alfreðsdóttir utanríkisráðherra hlaut afgerandi stuðning í varaformanninn.
» Eygló Harðardóttir og Gunnar Bragi Sveinsson drógu bæði framboð sín til baka.