Kristinn Freyr Sigurðsson úr Val er besti leikmaður Pepsi-deildar karla árið 2016 í hinni árlegu kosningu leikmanna deildarinnar.

Kristinn Freyr Sigurðsson úr Val er besti leikmaður Pepsi-deildar karla árið 2016 í hinni árlegu kosningu leikmanna deildarinnar. Athyglisvert að Kristinn Freyr skuli hafa átt svo magnað tímabil sem raun ber vitni þrátt fyrir að hafa glímt við nárameiðsli síðan í janúar. „Ég var langt frá því að vera 100% í fyrri hlutanum en náði að beita mér betur í þeim seinni.“

Óttar Magnús Karlsson, hinn 19 ára gamli framherji Víkings R., var kjörinn efnilegasti leikmaðurinn.