Alfreð Elías Jóhannsson er tekinn við kvennaliði Selfoss í knattspyrnu sem mun leika í 1. deild á næstu leiktíð, en liðið féll á dramatískan hátt úr efstu deild í lokaumferð deildarinnar á föstudaginn síðastliðinn.

Jóhann Ólafur Sigurðsson mun aðstoða Alfreð Elías sem tekur við liðinu af Guðjóni Bjarna Hálfdánssyni.

Alfreð starfaði síðast sem þjálfari ÍBV í úrvalsdeild karla, en þeir Ian Jeffs tóku við liðinu af Bjarna Jóhannssyni er langt var liðið á nýafstaðið tímabil.