MUD. A-Enginn
Norður | |
♠DG73 | |
♥5 | |
♦KG54 | |
♣ÁD52 |
Vestur | Austur |
♠964 | ♠Á1082 |
♥DG2 | ♥Á9763 |
♦986 | ♦ÁD32 |
♣10864 | ♣-- |
Suður | |
♠K5 | |
♥K1084 | |
♦107 | |
♣KG973 |
Suður spilar 3♣.
Útspilsreglur eru mestanpart spurning um smekk og uppeldi. Engin regla er algóð eða alvond. Pólskir spilarar venjast því frá barnæsku að spila út „öðru og fjórða“ – lægsta frá tvíspili og fjórlit, en miðjuspilinu frá þremur. Sú regla rennur saman við ensku regluna „middle-up-down“ sem Zia segir að sé réttilega skammstöfuð MUD. Sigurbjörn Haraldsson er ekki á sama máli, en þeir Jón Baldursson hafa notað pólsku útspilin í nokkur ár. Bessi var hér í vestur í NL-tvímenningum á Sigló.
Eftir opnun Jóns í austur á 1♥ endaði suður sem sagnhafi í 3♣. Bessi kom út með ♦8 – MUD frá þremur. Jón tók strax tvo tígulslagi og Bessi fylgdi lit í þann síðari með NÍUNNI eins og hann hefði byrjað með tvíspil. Jón tók þá ♠Á og spilaði síðan tígli í þriðja sinn. Sagnhafi beit á agnið, stakk frá með kóng og þar með fékk Bessi mikilvægan slag á tromp.