WOW Þegar um 1,2 milljónir farþega í ár.
WOW Þegar um 1,2 milljónir farþega í ár.
WOW air flutti um 1,17 milljónir farþega á fyrstu níu mánuðum ársins, sem er 117% fjölgun farþega miðað við sama tímabili í fyrra. Í septembermánuði voru farþegarnir tæplega 193 þúsund sem er 165% aukning á milli ára.

WOW air flutti um 1,17 milljónir farþega á fyrstu níu mánuðum ársins, sem er 117% fjölgun farþega miðað við sama tímabili í fyrra. Í septembermánuði voru farþegarnir tæplega 193 þúsund sem er 165% aukning á milli ára. Sætanýting í mánuðinum var 88% og var hún örlítið betri en í september í fyrra, þrátt fyrir tæplega 170% aukningu í sætaframboði.

Hlutdeild WOW í heildarfjölda farþega um Keflavíkurflugvöll var 27% í september, en það er 12 prósentustigum hærri hlutdeild en í sama mánuði í fyrra. Félagið hóf áætlunarflug til San Francisco og Los Angeles í sumar og mun í nóvember bæta daglegum flugum til New York við leiðarkerfið. Í vor bætist við flug til Miami og verður flogið þangað allan ársins hring.