Vænn Breskur veiðimaður með 80 cm lax í háfnum við Hrafnatóftir í Ytri-Rangá, aflahæstu á landsins. Veiðileyfasalar hafa áhyggjur af breska markaðinum, því krónan hefur styrkst um allt að 25 prósent gagnvart pundi.
Vænn Breskur veiðimaður með 80 cm lax í háfnum við Hrafnatóftir í Ytri-Rangá, aflahæstu á landsins. Veiðileyfasalar hafa áhyggjur af breska markaðinum, því krónan hefur styrkst um allt að 25 prósent gagnvart pundi. — Morgunblaðið/Einar Falur
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Stangveiði Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.

Stangveiði

Einar Falur Ingólfsson

efi@mbl.is

Laxveiðinni er víðast hvar lokið og tölur komnar í hús eftir býsna sérkennilegt veiðisumar, þar sem lax gekk afar snemma, mikið var af stórlaxi – og meira af laxi yfir 100 cm en í manna minnum, en smálaxagöngur voru víðast hvar lélegar. Eins og hafði verið spáð eftir kuldahretið í maí í fyrra, þegar sérfræðingar sögðust sjá að seiðagöngur hefðu farið illa. Enn er veitt í nokkrum hafbeitarám, Rangánum og Affallinu, og má kalla kropp; vikan gaf til að mynda 213 laxa í Ytri-Rangá og 24 veiddust í Eystri.

Rangárnar eru í fyrsta og þriðja sæti listans yfir gjöfulustu árnar í sumar – veiðin í Ytri er talsvert yfir meðaltali síðustu tíu ára sem er 6.860 laxar en í Eystri nokkuð undir meðaltali sem er um 4.500 laxar. Á milli Rangánna á listanum situr Miðfjarðará þar sem var frábær veiði í sumar, í kjölfar metveiðinnar í fyrra þegar fleiri fiskar voru færðir til bókar en nokkru sinni áður í á með náttúrulegan laxastofn. 4.338 laxar veiddust í Miðfirðinum á stangirnar tíu en meðalveiði síðasta áratugar í ánum fjórum á vatnasvæðinu er um 3.000 laxar. Veiðin í Blöndu, 2.386, var einnig nokkuð yfir meðaltali síðasta áratugar sem er um 2.200 laxar á sumri.

Sumarveiðin í Þverá-Kjarrá var 1.902 laxar, en meðalveiði er tæplega 2.300 laxar á stangirnar 14; í Langá var 1.433 landað en meðalveiðin er um 1.940 laxar. Fyrir norðan var veiðin í Aðaldal nokkuð yfir meðaltalinu, sem er um 1.070 laxar; í Víðidalsá veiddust 1.137, sem er rétt rúmlega meðalveiði og í nágrannaánni, Vatnsdasá, var 853 landað en meðalveiðin þar er tæplega 990. Eftir hina framúrskarandi byrjun á veiðisumrinu dró víðast hvar úr tökunni, enda kom í ljós að smálaxagöngurnar voru ekki liðmargar. Endar heildarveiði sumarsins á landinu sjálfsagt einhvers staðar fyrir neðan meðaltalið.

Óhemju gott í Laxá í Dölum

En talandi um meðalveiði síðasta áratugar, þá er hún um 1.160 laxar í Laxá í Dölum. Í sumar var veiðin hins vegar með allra besta móti þar þegar 1.711 laxar voru færðir til bókar. Í nágrannaánni Haukadalsá veiddist einnig mjög vel, 1.056 laxar á stangirnar fimm, en meðalveiði síðustu tíu ára í ánni er 755 laxar. Haraldur Eiríksson, sölustjóri Hreggnasa, sem fer með sölu leyfa í Laxá, segir veiðina í þessum tveimur ám hafa verið undantekningu hvað vesturhluta landsins varðar.

„Faxaflóasvæðið kom verst út af öllum svæðum landsins, allt frá Elliðaám og upp í Borgarfjörð var veiðin sýni verst,“ segir Haraldur. „Vonbrigðin hjá okkur í Hreggnasa voru Grímsá og Laxá í Kjós. Mér fannst samt vera meira af laxi í Kjósinni nú en 2012 og 2014 en skilyrðin þar í þurrkinum voru þau verstu þau 23 sumur sem ég hef verið við ána.

En það sem kom mér mest á óvart var þessi rosalega veiði í þessum tveimur Dalaám, Haukadalsá og Laxá í Dölum. Þar var enginn skortur á smálaxi. Ég veit ekki hver ástæðan getur verið, hvort þessar ár fari betur með seiðin en aðrar, það er erfitt að segja. Eða hvort endurkoma laxa, sem ganga út að vori en snúa aftur, geti verið meiri enn annars staðar. Við tókum talsvert af hreistursýnum í Laxá þegar leið á sumarið, áður en við slepptum löxunum, og það verður forvitnilegt að sjá hvað kemur út úr því. En þetta var óhemju gott sumar í Laxá. Þetta minnti á gamla tíma, ég gæti trúað því að sex til sjö hundruð stórlaxar hafi verið færðir til bókar. Það var svo mikið af stórum fiski í ánum í sumar.“

Djúp niðursveifla var í Laxá í Dölum á árunum 2011 til 2014 en síðustu tvö sumur hafa göngurnar heldur betur glæðst. „Það er engin maðkveiði lengur og strangir kvótar, það er einhver endurveiði, en það var einfaldlega gríðarlegt magn af laxi í ánni í sumar. Þessir laxar veiddust á 498 stangardögum,“ sem er mjög góð veiði á stöng.

Oddatalan gott veiðiár

„En þetta var eitt furðulegasta veiðisumar sem ég hef upplifað,“ segir Haraldur. Um miðjan júní var hann við veiðar í einn dag ásamt félögum í Blöndu, og þegar þeir höfðu landað 38 löxum fóru þeir að tala um að svona gæti þetta ekki gengið langt inn í sumarið, laxinn hefði einfaldlega gengið óvenju snemma, eins og kom í ljós þegar veiði hófst í hverri ánni á fætur annarri. Þeim þótti ekkert góðs viti að fá laxinn svona „rosalega snemma. Og þá var fiskurinn víða orðinn leginn! Manni krossbrá við að sjá margar myndirnar. Já, þetta var stórfurðulegt veiðisumar.

Og eins og maður óttaðist klikkuðu smálaxagöngurnar.“

Haraldur er hugsi yfir því hvernig tíðarfarið hefur haft áhrif á laxagöngur undanfarin ár. „Annað hvert ár hefur verið kalt vor og við erum komin í þá stöðu að frá 2012 er oddatalan gott veiðiár en slétta talan vont ár.

Við fáum frábær ár og léleg ár til skiptis, því við erum alltaf að fá tvo árganga í veiðina í einu. Nú í vor fóru þannig tveir árgangar til hafs. Þetta eru orðnar óþægilega miklar öfgar; það væri gott að hafa þetta í meðalveiði til að forðast of miklar væntingar eða vonbrigði.“

Fantaveiði og svaka fiskar

Haustið er tími sjóbirtingsins og að sögn Gunnars J. Óskarssonar, formanns Stangaveiðifélags Keflavíkur, sem er með nokkur rómuð veiðisvæði á helsta svæði stóra birtingsins í Skaftafellssýslum, hefur veiðin verið sérlega góð í haust.

„Birtingsveiðin hefur verið flott á öllum svæðunum okkar, alls staðar mjög góð,“ segir hann og telur upp Grenlæk, Jónskvísl, Fossála og Geirlandsá. Uppselt var á öll svæðin og sjálfur hefur hann farið tvær ferðir í Geirlandið ásamt félögum og gengið vel: „Fyrst fengum við 35 og svo 42. Það var fantaveiði og svaka fiskar inn á milli, upp í 15 punda fleka! Og ég veit að á öðrum svæðum, eins og í Edvatni, hefur líka verið flott veiði.“

Gunnar hefur fylgst með birtingnum um langt árabil og segir athyglisvert að þau sumur þegar laxveiði er slök er birtingsveiðin venjulega með besta móti. „Og birtingurinn er ofboðslega feitur og fallegur í ár, og margir stórir. Þá er mikið af stórum geldfiski.“