Falk útgáfa og tónleikahaldari stendur ásamt DJ hópnum Plútó fyrir teknótónum Perc á Palóma Bar. Perc er hliðarsjálf breska tónlistarmannsins Ali Wells sem hefur sl. áratug unnið sér virðingu sem stórt nafn sem plötusnúður í teknó-geiranum.
Falk útgáfa og tónleikahaldari stendur ásamt DJ hópnum Plútó fyrir teknótónum Perc á Palóma Bar. Perc er hliðarsjálf breska tónlistarmannsins Ali Wells sem hefur sl. áratug unnið sér virðingu sem stórt nafn sem plötusnúður í teknó-geiranum. Klúbbakvöldið hefst í kvöld kl. 23.30, en Perc mun þeyta skífum í tvær klukkustundir. Perc til halds og trausts verða Frank Honest/ Nicholas O'Keefe, Tandri og Nærvera.