Svala Björgvinsdóttir var fædd að Úlfsstöðum í Hálsasveit í Borgarfirði 26. júní 1930. Hún lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Kirkjuhvoli, Hvolsvelli, 27. september 2016.
Foreldrar hennar voru Ragnhildur Jónsdóttir, f. 22. desember 1898, d. 12. september 1934, og Björgvin Þórðarson, f. 31. mars 1908, d. 14. janúar 1945.
Svala var elst þriggja systra. Systur hennar voru Guðrún Björgvinsdóttir (Didda), f. 10. september 1931, d. 29. nóvember 1978, og Ragnhildur Björgvinsdóttir (Lilla), f. 3. desember 1932, d. 27. maí 2007.
Móðir Svölu dó frá systrunum barnungum þegar Svala var fjögurra ára, Didda þriggja
ára og Lilla á öðru ári. Helga Eiríksdóttir, vinnukona, tók þær systur að sér fyrstu árin og bjuggu þær að Úlfsstöðum, en þegar Svala var sex ára flutti Helga með þær systur að Örnólfsdal til Guðmanns, afabróður þeirra. Þær bjuggu í einu herbergi, þar sem þær héldu til með allt sitt, sváfu og elduðu. Eldhússkápnum lýsti Svala á þann veg, að fremur stór trékassi var hafður á hliðinni, útbúin í hann hilla og hvít tjöld höfð fyrir. Minntist Svala þess að þær hafi átt eina kú, sem drapst og þá hafi verið keypt önnur. Svala sagðist ekki vita á hverju þær hefðu lifað, en fyrirvinnan var engin. Þegar Svala var átta ára, Didda á sjöunda ári og Lilla á því sjötta fóru Didda og Lilla annað í fóstur, en Svala var áfram í nokkur ár hjá Guðmanni, afabróður sínum. Aðskilnaðurinn reyndist þeim systrum erfiður og talaði Svala um það sem sorgardaginn mikla.
Árið 1943 fluttist Svala með Guðmanni, frænda sínum, og fjölskyldu að Jórvík í Flóa, Árnessýslu. Ábúendaskipti urðu í Jórvík árið 1949 og réð Svala sig þá til Sveins Böðvarssonar á Selfossi. Árið 1950 fór Svala sem kaupakona að Butru í Fljótshlíð.
Á árunum 1952-1953 var hún vinnukona að Geldingalæk í Árnessýslu. Aftur fór Svala að Butru í Fljótshlíð árið 1954, fyrst sem vinnukona, en frá árinu 1956 var hún ráðskona hjá Böðvari Gíslasyni, f. 6. september 1921, ábúanda þar. Svala bjó upp frá því að Butru eða þar til hún missti heilsuna árið 2009 og fór á Dvalar- og hjúkrunarheimilið Kirkjuhvol. Tengsl hennar við Butru voru áfram mjög sterk.
Svala var ógift og barnlaus.
Útförin fer fram frá Breiðabólstaðarkirkju í Fljótshlíð, í dag, 8. október 2016, kl. 14.
Takk, elsku Svala, fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur og með okkur, fyrir gjafirnar og nammið. Takk fyrir að koma oft inn að Butru og að við máttum koma í heimsókn til þín.
Þú hjartans vina hnigin ert
og hjálpar stirðnuð mund,
því kærleiks vörmum kossi sért
hér kysst á hinstu stund.
Þú varst svo mild, svo göfug og góð,
og gast oft dægur stytt,
því langar okkur að lítið ljóð
nú leggja á bólið þitt.
Þú skildir okkur allra best
og ungra kættir lund,
þú samúð áttir manna mest
að miðla hverja stund.
Þú dæmdir barna brotin vægt
með bestan kærleiks vott,
þér, vina, treysta var svo hægt,
þú vildir öllum gott.
Á örmum þínum börnin barst,
þá brosið lék um kinn,
þú alltaf barn í anda varst,
þó yrðir fullorðin.
Þó grói leiði og gleymist tár
þín geymist minning hlý.
Æ, lifðu sæl um eilíf ár,
Guðs náðar faðmi í.
(Helga Pálsdóttir)
Valur, Auður og Jens
Eyvindur Ágústsbörn.
Síðustu árin urðum við hjónin og fjölskylda okkar þeirrar gæfu aðnjótandi, að eiga með henni margar góðar stundir. Við festum kaup á húsi á Hvolsvelli, sem við notum mikið í frístundum okkar. Það varð til þess að við gátum gefið Svölu meiri tíma og verið henni innan handar.
Svala hlaut ekki langa skólagöngu, en hún var vel lesin, einstaklega minnug og fylgdist vel með. Hún var mjög samviskusöm og nákvæm. Svala var hreinskiptin um menn og málefni, hafði ákveðnar skoðanir og góða kímnigáfu. Var gaman að ræða við hana um alls kyns málefni úr fortíð og nútíð eða leita í hennar viskubrunn.
Svala naut þess alla tíð að vera í sveitinni og sinna þeim störfum, sem búskap fylgja. Hún ferðaðist ekki mikið út fyrir sveitina, til þess þurfti ærnar ástæður.
Frá Butru er ægifagurt útsýni og sést meðal annars vel til Vestmannaeyja á góðum degi. En til Eyja fór Svala aðeins einu sinni um ævina, þegar henni var boðið þangað í tilefni af sjötugsafmælinu.
Svala lét lítið fyrir sér fara á stórafmælum. Þegar líða fór að 85 ára afmælisdegi hennar spurðum við hana hvort hún vildi ekki gera sér dagamun af því tilefni. Hún taldi það nú algjöran óþarfa. Ráðin voru þá tekin af henni og henni haldin lítil kjötsúpuveisla utandyra hjá okkur á Hvolsvelli í fallegu veðri. Hún naut þess vel og hafði á orði að þetta væri í fyrsta sinn, sem haldið væri upp á afmæli hennar í hópi fjölskyldu og vina. Aldrei hafði hún fengið svona margar afmælisgjafir og þótti alveg nóg um. En hún var mjög þakklát og talaði oft um þennan dag.
Sauðkindin var í miklu uppáhaldi hjá Svölu. Hún naut þess að taka þátt í sauðburðinum og finna lyktina af nýfæddum lömbum. Þá var réttartíminn mikil hátíð hjá henni. Svala var mikill dýravinur og bar virðingu fyrir öllum skepnum. Að sama skapi báru dýrin virðingu fyrir henni.
Böðvar býr enn að Butru, en ábúendur þar í dag eru Ágúst Jensson frá Teigi í Fljótshlíð og kona hans, Oddný Steina Valsdóttir, ásamt þremur börnum. Ágúst og Oddný hafa alla tíð reynst Svölu einstaklega vel og börnin þeirra þrjú voru gullmolar Svölu. Þau voru henni sem barnabörn, sem hún naut að fylgjast með vaxa úr grasi.
Svala naut þess að borða íslenskan mat, var ekki hrifin af breyttum mat eins og hún orðaði það. Það var gaman að bjóða henni í mat og var þá auðvitað alíslenskur matur hafður á borðum, svo sem reykt hrossakjöt, lambakjöt með ýmsu móti, taðreykt bjúgu og góður fiskur svo sem lax. Þá var þorramatur í algjöru uppáhaldi hjá henni.
Á meðan heilsa Svölu leyfði hafði hún gaman af þessum sameiginlegu máltíðum okkar. Þegar við sóttum hana á Kirkjuhvol kvaddi hún yfirleitt með þeim orðum að nú væri hún að fara út á lífið.
Það reyndist Svölu mikil gæfa að ráða sig til Böðvars á Butru. Þar leið henni alla tíð vel.
Við viljum þakka starfsfólki öllu á Kirkjuhvoli fyrir þá góðu umönnun og hlýju, sem Svala naut á meðan hún dvaldi þar.
Blessuð sé minning einstakrar konu, sem skilur eftir sig tómarúm. Hennar er sárt saknað.
Björg og Númi.
Það var notalegt að koma til Svölu, hún var jafnan viðmótsþýð og hæglát en gat þó haft afgerandi skoðanir á mönnum og málefnum. Menn áttu ekkert endilega inni hjá henni Svölu enda konan fölskvalaus. Einlægni og heiðarleiki voru einkenni Svölu. Hún lifði sig inn í gleði barnanna og að manni fannst upplifði sorg dýranna eins og sína eigin. Hún hreifst með í gleði augnabliksins og hláturinn var einlægur. Svala tók ástfóstri við börnin á Butru og var þeim ávallt góð. Hún gat átt vont með svefn ef eitthvert barnanna var lasið. Ekki vildi hún heyra talað um krakkagrísi, blessuð börnin eða hjartaknúsarar fannst henni betur við hæfi. Hún átti alltaf gott í skúffunni á Butru og skápnum á Kirkjuhvoli. Aldrei var það skammarstrik framið á Butru að Svala tæki ekki málstað barnanna.
Þakklæti og söknuður er efst í huga þegar við kveðjum þig, elsku Svala. Þú varst einstök manneskja og kenndir okkur margt.
Ýmislegt um þrautseigju og þolinmæði og hvernig við metum það sem lífið færir okkur. Út fyrir landsteinana komst þú aldrei en reyndir á þinni ævi meira en margur heimshornaflakkarinn. Hvíl í friði, hjartans vinkona.
Oddný Steina Valsdóttir og Ágúst Jensson á Butru.
Eftir því sem aldurinn færðist yfir ábúendur á Butru fækkaði búfénaði og Svala tók því nærri sér þegar hún þurfti að sjá á eftir öllum kúnum og eins þegar fénu fækkaði. Það var að vonum mikill happafengur á Butru árið 2003 þegar Böðvar bóndi sýndi þá miklu framsýni að leigja ungu pari, Ágústi Jenssyni og Oddnýju Steinu Valsdóttur, jörðina, þó með áframhaldandi búseturétti fyrir sig og Svölu í íbúðarhúsinu. Unga fólkið hefur af miklum dugnaði byggt nýtt fjárhús, endurbyggt fjósið til nautaeldis og byggt snoturt íbúðarhús við hlið þess sem fyrir er og auk þess brotið land og ræktað og nú er svo komið að stórbú er rekið á Butru. Allri þessari þróun hefur Svala fylgst með af brennandi áhuga og ekki spillti fyrir þegar börn fóru fæðast á Butru eftir yfir 70 ára hlé. Börnin þrjú á Butru hafa því fram til þessa verið svo heppin að eiga „þriðju ömmuna“ í Svölu. Þegar heilsunni hrakaði fékk Svala inni á dvalarheimilinu að Kirkjuhvoli á Hvolsvelli en hélt þeim sið að koma aðra hverja helgi heim að Butru. Fyrst um sinn sá Böðvar um að sækja hana í sveitina en síðar tóku þau Oddný og Gústi það að sér. Ég vil að leiðarlokum þakka vináttu og tryggð og votta aðstandendum og vinum samúð.
Guðbjörn Árnason.