Ásdís Sif Gunnarsdóttir
Ásdís Sif Gunnarsdóttir
Myndlistarkonan Ásdís Sif Gunnarsdóttir heldur Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi, á morgun kl. 17 til 17:40 undir yfirskriftinni Innsetningar og útsetningar í rauntíma, úti og inni og í gegnum net.

Myndlistarkonan Ásdís Sif Gunnarsdóttir heldur Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi, á morgun kl. 17 til 17:40 undir yfirskriftinni Innsetningar og útsetningar í rauntíma, úti og inni og í gegnum net. Í fyrirlestrinum fjallar hún um nýlegar vídeó-innsetningar sínar, hugmyndafræðina sem býr að baki og hvaða vinnuaðferðum hún beitir. Aðgangur er ókeypis.

Ásdís Sif útskrifaðist með BFA-gráðu frá School of Visual Arts í New York árið 2000 og MA-gráðu frá University of California í Los Angeles 2004. Hún hefur vakið athygli fyrir vídeó-innsetningar, ljósmyndaverk og gjörninga. Auk þess að sýna á Íslandi hefur hún sýnt víða erlendis, tekið þátt í fjölda samsýninga og unnið vídeóverk á netinu. Ásdís Sif opnar sýninguna Sýn í þokunni í Listasafninu á Akureyri laugardaginn 29. október kl. 15.