Fullir dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands verða 25.700 kr. frá og með 1. nóvember. Er þeirri upphæð ætlað að mæta kostnaði vegna gistingar og fæðis í einn sólarhring.

Fullir dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands verða 25.700 kr. frá og með 1. nóvember. Er þeirri upphæð ætlað að mæta kostnaði vegna gistingar og fæðis í einn sólarhring. Þetta kemur fram á vef fjármálaráðuneytisins, en það er ferðakostnaðarnefnd sem ákveður upphæðina.

Fyrir gistingu í einn sólarhring eru greiddar 14.500 kr., 11.200 kr. fyrir fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag, og 5.600 kr. fyrir fæði í hálfan dag, minnst sex klukkustunda ferðalag.

Í frétt frá ráðuneytinu segir að meginreglan sé að greiða skuli kostnað vegna ferðalaga innanlands, það er fargjöld, mat og gistingu, eftir reikningi. Viðmið ferðakostnaðarnefndar eru hámarksupphæðir vegna greiðslu slíkra reikninga.