— Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Útlit er fyrir spennandi talningu atkvæða í kvöld og nótt. Fylgi virðist sveiflast óvenjumikið á milli flokka sem bjóða fram, ef litið er til síðustu kosninga.

Útlit er fyrir spennandi talningu atkvæða í kvöld og nótt. Fylgi virðist sveiflast óvenjumikið á milli flokka sem bjóða fram, ef litið er til síðustu kosninga. Baráttan er ekki síst á milli blokka þar sem spurningin er hvort stjórnarandstöðuflokkarnir nái meirihluta, eins og kannanir hafa bent til, eða Sjálfstæðisflokkurinn nær stöðu til að gera sig gildandi við stjórnarmyndun.

„Það er komið að úrslitastund og valið stendur á milli vaxtar eða vinstristjórnar,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.

Öflugt atvinnulíf og stöðugleiki

Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, segir að kosningarnar snúist um hvort hér verði áfram traust efnahagsstjórn, öflugt atvinnulíf og stöðugleiki eða snúið aftur til tilraunar með vinstristjórn og aðild að Evrópusambandinu.

„Kjósendur standa frammi fyrir tveimur valkostum; annars vegar öryggi og stöðugleika með flokkum sem hafa nú þegar sýnt fram á að þeir geti unnið saman að mikilvægum málefnum, og hinsvegar stjórnleysi og óöryggi með flokkum sem eru virkilega ólíkir og margklofnir undir stjórn Sjálfstæðisflokksins,“ segir Birgitta Jónsdóttir, formaður þingflokks Pírata.

16 þúsund ungir kjósendur

Um 246.500 kjósendur eru á kjörskrá í alþingiskosningunum í dag. Eru það tæplega níu þúsund fleiri en í kosningunum 2013. Nú eiga tæplega 16 þúsund kjósendur kost á að kjósa í fyrsta skipti vegna aldurs.

Níu flokkar bjóða fram í öllum kjördæmunum sex og þrír að auki í hluta landsins.

Misjafnt er hvenær kjörstaðir verða opnaðir. Í þéttbýlinu er almennt opnað klukkan 9 og lokað í síðasta lagi klukkan 22 í kvöld. Fyrstu tölur verða kynntar fljótlega upp úr því.

Hins vegar er hugsanlegt að það dragist að birta tölur í landsbyggðarkjördæmunum ef veður og færð hamlar flutningi kjörkassa til talningarstaða.