Ylur Hjartað í heilsulindinni er litla laugin. Þar er einstök lýsing.
Ylur Hjartað í heilsulindinni er litla laugin. Þar er einstök lýsing.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Þegar úti er myrkur og kuldi, og allur þungi og streita vetrarins hellist yfir sál og líkama Frónbúans, er gott að geta fundið athvarf á rólegum og hlýjum stað þar sem stjanað er við kroppinn og andlega hliðin nærð.

Ásgeir Ingvarsson

ai@mbl.is

Þegar úti er myrkur og kuldi, og allur þungi og streita vetrarins hellist yfir sál og líkama Frónbúans, er gott að geta fundið athvarf á rólegum og hlýjum stað þar sem stjanað er við kroppinn og andlega hliðin nærð.

Heilsa & Spa (www.heilsaogspa.is) er ný heilsu- og vellíðunarstöð í Ármúla 9, á sama stað og skemmtistaðurinn Broadway var áður til húsa. „Rýmið er allt nýuppgert og fallegt, og við leggjum áherslu á endurnærandi andrúmsloft og persónulega þjónustu, auk þverfaglegrar samvinnu við önnur heilbrigðisfyrirtæki í húsinu, s.s. Klíníkina, Sinnum, Gáska sjúkraþjálfun, Karitas og Hótel Ísland,“ segir Gígja Þórðardóttir, sjúkraþjálfari og framkvæmdastjóri Heilsu & Spa.

„Við bjóðum upp á fyrsta flokks spa-aðstöðu, með heitum og köldum potti, lítilli flot- og æfingalaug og sánu. Svo erum við með ýmis heilsunámskeið, s.s. hefðbundna heilsurækt og jóga, og námskeið til að efla stoðkerfið,“ telur Gígja upp. „Hér eru vönduð heilsuræktartæki og fimm sjúkraþjálfarar frá Gáska sem eru hver öðrum frábærari. Einnig er í boði nudd af ýmsum toga, nálastungur og sogskálameðferð – sogblettirnir halda því áfram á Broadway þó aðþeir séu í öðru formi,“ bætir Gígja við og hlær.

Endurnæra líkama og sál

Íslendingar virðast hafa lært að temja sér að hugsa vel um líkama og sál. „Við höfum séð það gerast að vaxandi áhugi er á því sem kalla má „mýkri heilsurækt“, og algengt að Íslendingar stundi það að fara reglulega í hugleiðslu, nudd og dekur. Er það ekki bara til þess gert að vinna á alls kyns kvillum heldur til að endurnæra líkamann, draga úr streitu og auka almenna vellíðan.“

Hjá Heilsu & Spa er meðal annars boðið upp á paranudd. Gígja segir geta verið eftirminnilega upplifun fyrir pör að fara í nudd saman. „Þetta er mikil gæðastund fyrri parið og við leggjum okkur fram við að skapa fallega stemningu með kertum og ljúfri tónlist. Nuddararnir tveir samræma hjá sér nuddið sem fer fram í sama herberginu, hlið við hlið. Vinsældir paranudds hafa verið að aukast hjá okkur, og þykir meðal annars kjörin gjöf að gefa ef gera á vel við makann og sjálfan sig í leiðinni,“ segir Gígja og bætir við að hægt sé að óska aukalega eftir léttum veitingum á borð við freyðivín og ostabakka.

Í góðra vina hópi

Að sögn Gígju er líka vinsælt hjá alls kyns hópum að verja huggulegum parti úr degi í heilsulindinni. „Þetta eru t.d. vinahópar og vinnustaðahópar og getum við klæðskerasniðið pakka handa hverjum og einum. Algengt er að byrja á jóga- eða zúmba-tíma og fara síðan í heita pottinn og sánu þar sem nuddari gengur á milli og veitir herða- eða fótanudd á meðan málin eru rædd og laufléttar veitingar smakkaðar, áður en farið er í mat á Bistróinu á Hótel Íslandi. Það gefur okkur sérstöðu á markaðinum að hópar geta komið utan þess tíma sem opið er og er þá enginn annar en viðkomandi hópur á staðnum.“

Í sumar var opnuð hjá Heilsu & Spa snyrtistofan Fegurð & Spa, sem Heiðdís Steinsen snyrtimeistari stýrir. „Þar er boðið upp á allar helstu snyrtimeðferðir, s.s. andlitsmeðferðir, hand- og fótsnyrtingu, litun, plokkun og vax, fyrir bæði karla og konur,“ segir Gígja og lætur fljóta með að karlar sjást æ oftar á snyrtistofunni.

Núllstilling á snyrtistofunni

„Við erum öll að hamast eins og hamstrar alla daga, og getur verið núllstillandi og endurnærandi að heimsækja snyrtifræðinginn reglulega, gera vel við sig, kúpla sig út úr hversdagsamstrinu og koma svo aftur út í lífið með nýtt andlit, fagra fingur eða glóandi húð.“

Karlarnir komast oft á bragðið þegar þeir fá snyrtimeðferð að gjöf. Segir Gígja vinsælast meðal karlmannanna að fá nudd, handsnyrtingu og andlitsbað. „Eftir að hafa prófað í eitt skipti hika þeir ekki við að koma aftur. Það getur verið svolítill nautnaseggur í körlunum. Þeir vita hvað þeir vilja og eru ekki feimnir að láta það eftir sér.“