Stjórn Kennarasambands Íslands hefur lýst þungum áhyggjum af kjaradeilu Félags kennara og stjórnenda tónlistarskóla og sveitarfélaganna en samningar tónlistarskólakennara hafa verið lausir í nær eitt ár.

Stjórn Kennarasambands Íslands hefur lýst þungum áhyggjum af kjaradeilu Félags kennara og stjórnenda tónlistarskóla og sveitarfélaganna en samningar tónlistarskólakennara hafa verið lausir í nær eitt ár. „Staða tónlistarskólakennara er með þeim hætti að nýliðun er lítil sem engin innan stéttarinnar og afstaða sveitarfélaganna er farin að hafa áhrif á starfsánægju tónlistarskólakennara í starfi,“ segir m.a. í tilkynningu.

„Stjórn KÍ krefst þess að gengið verði strax til samninga við Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum og laun þeirra leiðrétt í samræmi við laun annarra kennara í landinu.“