Arnar Davíð Jónsson
Arnar Davíð Jónsson
Arnar Davíð Jónsson lék í gær seinni 8 leikina í forkeppni EM í keilu sem fram fer í Olomouc í Tékklandi. Hann spilaði mjög vel og tryggði sig inn í 16 manna úrslitin. Hann var með 230,2 í meðaltal.

Árdegis í dag hefst keppni í 16 manna úrslitum og eru leiknir 8 leikir. Eftir það verður skorið niður í 8 keppendur sem halda áfram í undanúrslit.

Heimamaðurinn Jaroslav Lorenc er efstur með 242,9 í meðaltal.