Lokahönd Þegar ljósmyndari blaðsins leit inn í Verkmenntaskólann á Akureyri var enn unnið að undirbúningi.
Lokahönd Þegar ljósmyndari blaðsins leit inn í Verkmenntaskólann á Akureyri var enn unnið að undirbúningi. — Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Kristján H. Johannessen khj@mbl.

Kristján H. Johannessen

khj@mbl.is

„Fyrr í vikunni leit spáin ekkert sérstaklega vel út enda talsverð snjókoma í kortunum þá, en sem betur fer hefur hlýnað aðeins svo þetta verður nú ekki eins slæmt og menn héldu fyrst,“ segir Gestur Jónsson, formaður yfirkjörstjórnar í Norðausturkjördæmi, við Morgunblaðið.

Vísar hann í máli sínu til þess að almennar kosningar til Alþingis fara fram í dag, laugardaginn 29. október, og óttuðust menn fyrr í vikunni að slæm veðurskilyrði kynnu að torvelda flutning kjörgagna milli landshluta og seinka talningu atkvæða.

„Við höfum þó auðvitað gert ráðstafanir eins og alltaf þegar um vetrarkosningar er að ræða, en t.a.m. er búið að tryggja aðstoð frá Vegagerðinni ef á þarf að halda,“ segir Gestur.

Margir óvissuþættir uppi

Þótt útlit sé fyrir skárra veður en verstu veðurspár gerðu ráð fyrir í upphafi getur veðrið enn sett svip sinn á flutning kjörgagna. Nefnir Gestur í því samhengi að flytja þarf kjörseðla frá Egilsstöðum til Akureyrar til talningar.

„Við söfnum kjörkössum af Austurlandi upp á Egilsstaði þaðan sem flogið er með þá til okkar. Flugið er enn stór óvissuþáttur og ef veður er slæmt þá þarf að keyra með þá og ef færðin er erfið þá tekur það enn lengri tíma. Allt kemur þetta þó í ljós,“ segir hann.

Þá hefur verið ófært út í Grímsey undanfarna daga og komust t.a.m. kjörseðlar og önnur gögn ekki þangað fyrr en seint í gær. „Svo eiga þessi kjörgögn eftir að komast í land aftur – þetta er ekki alveg sama samgönguöryggi og í Reykjavík. Þetta kjördæmi er mjög víðfeðmt, nær frá Siglufirði og að Djúpavogi, og flækjustigin geta þar af leiðandi varið ansi mörg,“ segir Gestur.

Kristján G. Jóhannsson er formaður yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi. Hann segist ekki hafa neinar áhyggjur þegar kemur að flutningi kjörseðla. „Við stefnum að því að vera komnir með atkvæði alls staðar að úr kjördæminu strax um kvöldið og hefja flokkun fyrir luktum dyrum eftir klukkan 20. Við byrjum svo að telja klukkan 22,“ segir Kristján G. og bætir við að hann eigi von á fyrstu tölum frá kjördæminu milli klukkan 23 og miðnættis í kvöld.

Stórir kjörseðlar tefja talningu

Að þessu sinni bjóða 12 stjórnmálaflokkar fram lista og eru 1.302 einstaklingar í framboði. Stóran kjörseðil þarf til að koma listunum 12 fyrir á blaði og segir Kristján G. stærðina tefja talningu. „Bæði tekur seðillinn mikið pláss á borði og svo er hann tvíbrotinn, en til þess að opna hann þarf tvenn handtök og það tekur lengri tíma,“ segir hann.

Karl Gauti Hjaltason, formaður yfirkjörstjórnar í Suðurkjördæmi, tekur í sama streng og segir erfiðara að telja stóra kjörseðla. „Hann er 64,5 sentimetrar á lengd – það er svoldið stórt og tekur pláss á borði, en við höfum nú séð þá svipaða áður,“ segir hann og bætir við að gangi allt eftir ættu fyrstu tölur að berast frá kjördæminu um klukkan 22.30.

„Það er þó spáð suðaustanátt svo það gæti verið heljarsjór við Vestmannaeyjar. En miðað við mína reynslu ættum við að geta siglt til Þorlákshafnar – best hefði verið að komast með kjörgögnin til Landeyjahafnar,“ segir Karl Gauti.

Jónas Þór Guðmundsson, formaður yfirkjörstjórnar í Suðvesturkjördæmi, segir fyrstu tölur geta komið um klukkan 22.30. „Þetta er auðvitað áætlun, en við stefnum að þessu og allur undirbúningur fyrir kosningarnar hefur gengið vel.“

Á síðustu metrunum í Rvk

Þegar Morgunblaðið náði tali af Sveini Sveinssyni, formanni yfirkjörstjórnar Reykjavíkurkjördæmis suður, voru menn á lokametrunum með undirbúning kjörstaða, en alls eru kjörstaðir 15 talsins í Reykjavík.

„Þetta var að vísu svolítið erfitt því það er náttúrulega ekkert frí í skólum. Okkar menn hafa því verið á handahlaupum í undirbúningi,“ segir hann. „Það er auðveldara að undirbúa kosningar á sumrin þegar menn hafa eins marga daga og þeir vilja.“

Af þeim 15 kjörstöðum sem kosið er á í Reykjavík eru 12 skólar. Hinir þrír eru Ráðhús Reykjavíkur og tvö íþróttahús. Þá segist Sveinn búast við fyrstu tölum um klukkan 23.

Erla S. Árnadóttir, formaður yfirkjörstjórnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, reiknar með fyrstu tölum þaðan milli 23 og 23.30.