Á sameiginlegum fundi þingmanna Norðvesturkjördæmis og Fjórðungssambands Vestfirðinga sem haldinn var í Reykjavík í gær, var samþykkt yfirlýsing um að hvergi verði hnikað né frestað fyrirhuguðu útboði á Dýrafjarðargöngum í janúar næstkomandi.

Í yfirlýsingunni segir jafnframt: „Fyrir liggur forgangsröðun verkefna í samgönguáætlun 2015-2018 og í ríkisfjármálaáætlun 2017-2021 og er samstaða um að Dýrafjarðargöng verði fullfjármögnuð í fjárlögum 2017 og verkefnið haldi tímaáætlun með opnun ganganna 2020.“