Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Rúmlega 80 grunnskólakennarar á höfuðborgarsvæðinu, sem sögðu upp í kjaradeilu kennara fyrir 1. desember, hafa ekki dregið uppsögn sína til baka í kjölfar þess að samningar tókust á milli samninganefndar grunnskólakennara og sveitarfélaganna. Í Reykjanesbæ sögðu um 40 grunnskólakennara einnig upp, sem eru um 24% grunnskólakennara í öllu sveitarfélaginu. Þar hafa engar uppsagnir verið dregnar til baka.
Heimsækja kennara
Í vikunni munu bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ heimsækja alla sex grunnskóla bæjarins og ræða við kennara um hvernig best megi haga vinnu við að bæta framkvæmd vinnumats, ná sátt um starfsumhverfi kennara og létta álagi af þeim. Þetta kemur fram á vefsíðu Reykjanesbæjar.Þeir átta kennarar við Réttarholtsskóla sem sögðu upp störfum eftir að nýr kjarasamningur var undirritaður hafa ekki dregið uppsagnir sínar til baka, að sögn skólastjóra.