Fjöldi þeirra sem létu lífið í jarðskjálftanum á Súmötru í fyrrakvöld hélt í gær áfram að hækka og var kominn í rétt tæplega 100. Þá voru á þriðja hundrað manns sagðir hafa særst í skjálftanum, sumir þeirra lífshættulega.

Jarðskjálftinn mældist 6,5 stig og átti hann upptök sín á fremur litlu dýpi í héraðinu Aceh. Reið hann yfir snemma morguns að staðartíma, um það leyti sem íbúar voru á leið til morgunbæna, en að sögn AFP hrundu um 100 mannvirki.