Sorg Vélin hvarf sporlaust 2014.
Sorg Vélin hvarf sporlaust 2014.
Á sama tíma og yfirvöld í Malasíu hafa svo gott sem gefist upp á leit sinni að farþegaþotu Malaysian Airlines, MH370, hafa ættingjar þeirra sem um borð voru tekið á leigu þrjú leitarskip og eru þau nú að svipast um eftir braki við strendur Madagaskar.

Á sama tíma og yfirvöld í Malasíu hafa svo gott sem gefist upp á leit sinni að farþegaþotu Malaysian Airlines, MH370, hafa ættingjar þeirra sem um borð voru tekið á leigu þrjú leitarskip og eru þau nú að svipast um eftir braki við strendur Madagaskar. Einungis eitt skip leitar nú vélarinnar á Indlandshafi á vegum stjórnvalda.

MH370 hvarf skyndilega 8. mars 2014 er hún var á leið frá Kúala Lúmpúr til Peking í Kína með alls 239 manns innanborðs. Lítið sem ekkert hefur fundist til þessa.