Icewear Guðmundur H. Björnsson hefur verið ráðinn markaðsstjóri Icewear. Guðmundur hefur víðtæka reynslu af markaðs- og sölumálum en hann kemur til Icewear frá 365 miðlum þar sem hann var forstöðumaður markaðs- og vörustjórnunarsviðs.
Icewear
Guðmundur H. Björnsson hefur verið ráðinn markaðsstjóri Icewear. Guðmundur hefur víðtæka reynslu af markaðs- og sölumálum en hann kemur til Icewear frá 365 miðlum þar sem hann var forstöðumaður markaðs- og vörustjórnunarsviðs.
Hjá Icewear mun Guðmundur sinna stefnumótun og áætlanagerð í markaðsmálum, daglegum rekstri markaðsdeildar ásamt samskiptum við fjölmiðla og samstarfsaðila.
Áður hefur Guðmundur meðal annars starfað sem forstöðumaður sölu- og markaðssviðs hjá Tali, vöru- og viðskiptaþróunarstjóri hjá Já og faglegur stjórnandi markaðsmála hjá Símanum.
Guðmundur er með B.Sc. gráðu í alþjóðamarkaðsfræði frá Tækniháskóla Íslands, ásamt því að hafa lokið námi í rekstrarfræði frá sama skóla. Guðmundur hefur einnig setið í stjórnum ýmissa félagasamtaka.