PIPARS\TBWA Guðmundur Pálsson er nýr framkvæmdastjóri PIPARS\TBWA en hann tekur við af Valgeiri Magnússyni sem hefur gegnt starfinu frá stofnun auglýsingastofunnar.
PIPARS\TBWA Guðmundur Pálsson er nýr framkvæmdastjóri PIPARS\TBWA en hann tekur við af Valgeiri Magnússyni sem hefur gegnt starfinu frá stofnun auglýsingastofunnar. Guðmundur lærði auglýsingafræði í Bandaríkjunum og hefur starfað sem tenglastjóri í rúm sjö ár. Áður var hann framkvæmdastjóri TBWA\Reykjavík, svæðisstjóri Iceland Express, markaðs- og deildarstjóri IKEA og markaðsstjóri B&L.

Valgeir verður starfandi stjórnarformaður og mun færa sig alfarið í að vinna fyrir viðskiptavini að hugmyndum og stefnumótun.