Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segir að mjólkuriðnaðurinn sé betur í stakk búinn nú en nokkurn tíma til þess að ýta undir samkeppni.

Agnes Bragadóttir

agnes@mbl.is

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segir að mjólkuriðnaðurinn sé betur í stakk búinn nú en nokkurn tíma til þess að ýta undir samkeppni.

„Það kemur mér mjög á óvart að hann segi að ég hafi komið í bakið á kúabændum,“ sagði Þorgerður Katrín í samtali við Morgunblaðið í gær, þegar gagnrýni Arnars Árnasonar, formanns Landssambands kúabænda, á hana og hennar störf, vegna frumvarps um breytingar á búvörulögum, var borin undir hana. Gagnrýni Arnars birtist í Morgunblaðinu í gær.

Landbúnaðarráðherra sagði að hún hefði talað um að menn myndu vinna frumvarpið saman. „Ég held ég hafi tekið málið upp á öllum fundum með bændum, nú síðast í þarsíðustu viku, með stjórn Mjólkursamsölunnar,“ sagði Þorgerður Katrín.

Ráðherra sagði að hægt yrði að koma fram með gagnrýni og ábendingar varðandi þau drög að frumvarpi sem nú lægju fyrir, og svo yrði málið bara unnið áfram.

Spurð hvort unnið yrði með frumvarpið í stóru samráðsnefndinni, eins og sátt hafi verið um þegar búvörusamningar voru gerðir, sagði Þorgerður Katrín: „Það er alls ekki sjálfgefið að það hafi átt að fara í þann farveg. Það er alveg ljóst að ef svo yrði væri ekki verið að gera neitt af ráði í þessu máli fram til 2019. Hins getur vel farið svo að endurskoðunarnefndin taki þetta mál og skoði sérstaklega. Ég sé ekkert því til fyrirstöðu. Ég mun halda áfram að leita eftir umsögnum um málið og vinna það áfram.“

Samið í ráðuneytinu

Ráðherra sagði að frumvarpið ætti ekki að koma mönnum á óvart, enda væri það efnislega í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.

Ráðherra var spurð hvort það væri rétt að frumvarpsdrögin hefðu verið samin í Samkeppniseftirlitinu: „Nei, alls ekki. Frumvarpið var samið í ráðuneytinu,“ svaraði ráðherra.

Þá var ráðherra spurð hvort frumvarpið yrði lagt fram sem stjórnarfrumvarp: „Nú er frumvarpið til umsagnar og við skulum bara taka eitt skref í einu og það kemur bara í ljós hvað við gerum, þegar við höfum unnið efnislega úr þeim umsögnum sem berast. Það er alveg ljóst, varðandi Samkeppniseftirlitið og umfjöllun í atvinnuveganefndinni, að þetta er eitthvað sem legið hefur fyrir hjá þinginu.“

Ráðherra er stödd á sjávarútvegsráðstefnu í Noregi. „Af því ég er stödd hér í Noregi finnst mér rétt að taka það fram, hvað varðar þetta frumvarp, að við lítum m.a. til Noregs og Hollands sem fyrirmynda í þessu máli.“ Þorgerður Katrín sagði að sér sýndist sem mjólkuriðnaðurinn hefði verið í mjög mikilli sókn á umliðnum árum og ætti ekki að þurfa að kvíða þessu. Hann væri betur í stakk búinn nú en nokkurn tíma áður til að ýta undir samkeppni.