Valhöll Bréfritari vill að grenitrén standi áfram.
Valhöll Bréfritari vill að grenitrén standi áfram. — Morgunblaðið/Ómar
Það er furðulegt að í einu af harðbýlustu löndum á byggðu bóli heimsins sé fólk sem hagar sér eins og gróðurrasistar gagnvart þeim plöntum sem hafa sýnt ótrúlega aðlögunarhæfni í erfiðri veðráttu Íslands.

Það er furðulegt að í einu af harðbýlustu löndum á byggðu bóli heimsins sé fólk sem hagar sér eins og gróðurrasistar gagnvart þeim plöntum sem hafa sýnt ótrúlega aðlögunarhæfni í erfiðri veðráttu Íslands. Sitkagrenið, öspin og lúpínan, þessir góðu nýbúar Íslands, sem eru í hættu vegna gróðurrasistanna, eru langt komin með að bæta, breyta og fegra ásýnd Íslands. Einnig draga þessar plöntur úr mengun og veita skjól í vindasömu loftslagi. Nú ætla Þingvallanefnd og þjóðgarðsvörður að fella fleiri grenitré við Valhallarreitinn, jú vegna þess að trén hafi slæm sjónræn áhrif og einnig að til þess að komast á heimsminjaskrá SÞ sé þess krafist að grenitrjánum verði eytt. Þessi krafa hefur reynst ósönn.

Ragnheiður.