Sunna starfaði áður sem framkvæmdastjóri fasteignasviðs Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúss frá 2011. Þar á undan starfaði Sunna sem skrifstofustjóri Eignarhaldsfélagsins Portus frá 2006-2011. Sunna lauk B.Sc. í iðnaðartæknifræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2005. Breytingu þessari á framkvæmdastjórn félagsins er ætlað að styrkja og þróa Egilshöll enn frekar með innri vexti og uppbyggingu til framtíðar.
María Rúnarsdóttir hefur verið ráðin rekstrar- og þjónustustjóri hjá Regin. María starfaði áður sem vörustjóri hjá Olíuverzlun Íslands frá árinu 2013.
María lauk M.Sc.-gráðu í rekstrarverkfræði frá DTU í Danmörku árið 2012 auk B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði með áherslu á tungumál og alþjóðaviðskipti árið 2010.