Þessi uppskrift er mjög ljúffeng en vissulega má nota nánast hvað sem er í skálina og breyta og bæta eins og hugmyndaflugið stingur upp á. Ég reyni yfirleitt að blanda bæði ávöxtum og grænmeti og mér finnst skemmtilegt að hafa salatið litríkt. Eftir að hafa legið yfir samfélagsmiðlum virðist einnig skipta mjög miklu máli að skálin sjálf sé falleg. Eftir góðan rúnt fann ég þessa fallegu skál í Borð fyrir 2 og ég gat hafist handa við að fullkomna hugmyndir mínar um heimagerða Búdda-skál.
Salat – fyrir 2
1 granatepli, kjarnarnir úr því
1 dl bláber
2 dl avókadó í teningum
2 dl mangó í teningum
og parmesanbollur
(Mjög stór uppskrift – ég frysti uppskeruna í litlum pokum en einnig má steikja klatta úr deiginu.
1,5 - 2 bollar möndlumjöl (mjög próteinríkt)
1 bolli parmesan, rifinn
3 egg
Sjávarsalt
Pipar
Chilíflögur í kvörn (má sleppa) eða
annað krydd eftir smekk
Sigtið vatnið vel frá blómkálinu. Gott er að kreista blómkálið jafnvel í viskastykki til að losna við vatnið.
Stappið blómkálið með kartöflustöppu.
Hrærið öllum innihaldsefnunum saman við.
Það er best að krydda deigið duglega því það er ekki bragðmikið.
Deigið á að loða vel saman líkt og fisk- eða kjötfars. Ef deigið er of blautt skaltu bæta við meira mjöli.
Mótið bollur með skeið og setjið á bökunarpappír.
Bakið í 12-15 mínútur eftir stærð eða þar til bollurnar taka að gyllast.
Hnetusósa með chilí
4 msk góð olía
2 msk appelsínusafi
1/ tsk chilíflögur í kvörn, malað
tobba@mbl.is