1:0 Sigríður Lára Garðarsdóttir 9. átti síðustu snertingu, á marklínu, eftir skot Málfríðar af stuttu færi. Thelma hafði átt hornspyrnu frá hægri sem Guðmunda skallaði áfram.
1:1 Wang Shanshan 36. úr opnu dauðafæri eftir sendingu Wang Shuang sem komst inn í skelfilega sendingu Glódísar í vörninni.
2:1 Málfríður Erna Sigurðardóttir 48. af fjærstöng eftir hornspyrnu Margrétar Láru frá vinstri.
Gul spjöld:
Rauð spjöld:
*Fanndís Friðriksdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir léku báðar sinn 80. landsleik og Glódís Perla Viggósdóttir sinn 50. landsleik.