Markús Sigurðsson fæddist 20. desember 1935. Hann lést 13. febrúar 2017.

Útförin fór fram 24. febrúar 2017.

Elsku afi minn. Þú varst alltaf svo góður, ég var heppinn að eiga svona góðan afa. Þegar þú málaðir málverkin þín voru þau alveg eins og í alvöru, þegar við fórum í dalinn. Þú hugsaðir svo vel um plöntunar og það var alltaf gaman að hjálpa þér. Við löbbuðum oft á leikvöllinn og þú varst svo góður með barnabörnunum þínum. Mér þótti mjög vænt um þig.

Kveðja,

Kjartan Óli Bjarnason.