900 9907 Daði Freyr flytur lag sitt „Is this love?“
900 9907 Daði Freyr flytur lag sitt „Is this love?“
Daði Freyr Pétursson er flytjandi og höfundur lagsins „Hvað með það“ eða „Is This Love“ eins og það heitir á ensku. Hann stundar nám við hljóðtækni og tónlistarsköpun í Berlín og útskrifast þaðan í vor.

Daði Freyr Pétursson er flytjandi og höfundur lagsins „Hvað með það“ eða „Is This Love“ eins og það heitir á ensku. Hann stundar nám við hljóðtækni og tónlistarsköpun í Berlín og útskrifast þaðan í vor. „Strax eftir keppnina fer ég aftur heim til Berlínar að klára lokaverkefnið mitt og það verður brjálað að gera í því. Það er ef við förum ekki alla leið í aðalkeppnina,“ segir hann.

Daði Freyr segist hafa talið um helmingslíkur á að lagið hans myndi komast áfram úrslitin. „Viðbrögðin við laginu urðu miklu meiri en ég bjóst við. Ég hef reyndar fengið miklu meira út úr þessari keppni en ég átti von á,“ segir hann. „Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt og væri auðvitað alveg klikkað að fara út í aðalkeppnina. Það er eitthvað sem ég bjóst aldrei við að væri möguleiki. En við erum aðallega að reyna að hafa gaman af þessu og ekki taka þetta of alvarlega.“