Ferðalangar Erlend fyrirtæki hafa verið að hasla sér völl hér á landi.
Ferðalangar Erlend fyrirtæki hafa verið að hasla sér völl hér á landi. — Morgunblaðið/Styrmir Kári
Kristján H. Johannessen khj@mbl.

Kristján H. Johannessen

khj@mbl.is

„Hingað eru að koma erlend fyrirtæki sem bjóða bæði bílstjóra og rútubíla á verði sem er langt undir því viðmiði sem innlend fyrirtæki ráða við,“ segir Gunnar Valur Sveinsson, verkefnastjóri hjá Samtökum ferðaþjónustunnar (SAF), í samtali við Morgunblaðið.

Vísar hann í máli sínu til þess að erlendir bílstjórar, einkum frá Austur-Evrópu, séu nú í auknum mæli að koma hingað til lands með rútubíla á erlendum bílnúmerum og taka að sér verkefni í ferðaþjónustu. Eru meðal annars dæmi þess að hægt sé að leigja bíl og bílstjóra fyrir um 450 til 500 evrur á dag, en innlend fyrirtæki geta á engan hátt keppt við slíkt verð, að sögn Gunnars Vals.

Bæta þarf eftirlit

Aðspurður segir hann félagsmenn SAF hafa miklar áhyggjur af þróuninni. „Þessi fyrirtæki, sem hafa verið að koma inn á markaðinn að undanförnu, komast hjá því að greiða skatta og skyldur hér á landi en íslensku fyrirtækin þurfa að standa við allt sitt,“ segir Gunnar Valur og bætir við að mikill skortur sé á eftirliti.

„Við teljum mjög brýnt að efla allt eftirlit með þessu svo að hægt sé að sporna gegn þróuninni. Þessi fyrirtæki voru hér talsvert í fyrrasumar og í vetur hafa þau einnig verið með bíla í norðurljósaferðum.“

Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands (ASÍ), segir sambandið nú beina sjónum sínum að þessu.

„Þetta kom tiltölulega nýlega inn á borð til okkar og erum við meðal annars að skoða með hvaða hætti við getum brugðist við þessum málum sem komin eru upp,“ segir hann og bætir við að ASÍ hafi enn sem komið er óljósar hugmyndir um hver uppsetningin á þessu máli er.